Ég hef undanfarin ár bæði samið tónlist og endurútsett þekkt lög bæði erlend og innlend sem ég hef síðan sett á Soundcloud.
Hérna er hægt að hlusta á þau
Category: Tónlistin
Tónlist við myndband frá ESA í tilefni 30 ára afmælis Hubble geimsjónaukans
Hubble geimsjónaukinn 30 ára
Ég samdi tónlist við stutt myndband ESA Geimferðastofnunar Evrópu með geimsjónaukanum Hubble í tilefni þess að þá voru liðin 30 ár frá því að Hubble var skotið út í geiminn en það var í apríl 2020.
Gary Moore – Parisienne Walkways
Parisienne Walkways á Youtube
Parisienne Walkways er lag eftir Gary Moore gítarleikarasem náði 8. sæti breska smáskífulistans í maí 1979.
Lagið er á plötu Moores Back on the Streets en Phil Lynott sem var aðalsöngvari og bassaleikari hljómsveitarinnar Thin Lizzy samdi lagið með Moore.


