Ég er með þennan vef í hýsingu hjá fyrirtækinu 1984 ehf.
Ég hef verið þar í viðskiptum í mörg ár. Án þess að nokkuð sem hægt er að tala um hafi komið upp á.
En fyrir nokkrum dögum hrynur vefurinn algjörlega. Þetta var í um tvo sólarhringa eða svo. Hvorki birtist heimasíðan eða bakvinnsluvefurinn, allt saman óvirkt.
Ég sé það strax að vandamálið er þeirra megin og sendi þeim póst um það.
Ekki er brugðist strax við þessari ábendingu. En ca. tveimur dögum síðar hringir framkvæmdastjóri 1984 ehf. Margeir Ingólfsson í mig:
Hann fer að spyrja mig út í tæknileg atriði varðandi vefhýsinguna. Þetta var nokkuð sem ég þekki alls ekki. Ég sagði honum það og spurði hverju það sætti að þeir væru að hringja í viðskiptavinina. Þeir spyrja þá um tæknimál sem þeir eiga að standa skil á. Ég væri að greiða fyrir þessa þjónustu og hún ætti að vera í lagi.
Við þessi ummæli og gagnrýni mína brást hann mjög illa við. Hann sagðist munu skella á mig ef ég sýndi ekki háttvísi. En þá sagði ég honum að ég ætlaði ekki að láta kúga mig neitt í þessum samskiptum. Þá skellti Margeir Ingólfsson framkvæmdastjóri 1984 ehf. á mig.
Þegar það koma upp einhver vandamál varðandi vefsíður þá eru málin vanalega leyst með tölvupóstum þar sem ekkert fer á milli mála og allt hægt að rekja og staðfesta.
Þarna velur Margeir Ingólfsson að hringja í mig viðskiptavininn og athuga hvort það gangi ekki eftir að klína orsökunum á hruninu á þann sem þetta skrifar.
Þetta tókst að sjálfsögðu tókst ekki enda kom tölvupóstur skömmu síðar frá öðrum starfsmanni fyrirtækissins um hrunið.
Þar staðfestir hann bæði að hafa gert mistök og biðst einnig afsökunar á þeim en ég vissi alveg að þetta vandamál varð til hjá þeim.
Hins vegar hefur Margeir Ingólfsson framkvæmdastjóri 1984 ehf. ekki beðist afsökunar á sinni skammarlegu framkomu í símtalinu.
Það hefur hver sinn stíl þegar kemur að háttvísi og því að laða til sín viðskipti.
Ég hef aldrei heyrt um eða upplifað svona uppákomu fyrr hjá fyrirtækjum í sambærilegum rekstri gagnvart viðskiptavinum sínum.
Um áramótin 2024-2025 hækkaði árgjaldið hjá 1984 ehf. fyrir vefhýsinguna fyrir þessa vefsíðu frá 24.800 í 34.720 eða um 40%.
Fyrir nokkrum árum varð algjört hrun á hýsingarstarfsemi 1984 ehf. sem rataði illu heilli í flesta fjölmiðla landsins en hérna er tengill á frétt Mbl.is um málið:
Um 30 hættir hjá 1984 eftir hrun
Í öðrum fréttum af málinu á netinu segir meðal annars að það hafi orðið algert kerfishrun hjá fyrirtækinu.
Þar segir einnig frá því að þingmenn Pírata, hafi aðstoðað vefhýsingafyrirtækið 1984 í því að bjarga því sem bjargað verður eftir kerfishrun hjá fyrirtækinu.
Það varð til þess að vefþjónusta þúsunda fyrirtækja og einstaklinga lá niðri um nokkurra daga skeið.
Orsakir kerfishrunsins eru enn ókunnar og eru í rannsókn hjá starfsmönnum Nýherja. Mörður segir sérfræðinga telja ólíklegt að um árás eða skemmdarverk hafi verið að ræða, þótt ekkert sé útilokað um orsakirnar.
