Á Facebook er síða þar sem birtar eru ábendingar og færslur um fúskara, vafasama viðskiptahætti og allt fag eða vinnutengt í byggingabransanum.
Það er öllum er frjálst að setja inn færslur í formi texta og mynda.
Tengill á Facebook-síðuna
Tag: Facebook
Hópar og síður á Facebook sem gefa má gaum
Tryggingafélög og tjónþolar
Þessi grúppa er hugsuð sem umræðuvettvangur fyrir tjónþola og viðskiptavini tryggingafélagana. Hér geta meðlimir deilt reynslusögum sínum af viðskiptum við tryggingafélög í kjölfar tjóns. Mikið er á reiki hvernig tryggingafélögin bregðast við tjóni og hvort og þá hvernig þau bæta tjón sem þau hafa skuldbundið sig til að bæta. Í reynd hefur maður hingað til aðeins stuðst við sögusagnir.
Þessi grúppa er ætluð að varpa ljósi á viðskiptahætti Tryggingafélagana svo almenningur geti tekið betri og hagstæðari ákvarðanir um hvaða tryggingafélög þau ákveða að skipta við.
Tengill á hópinn
Húsfélög, fjöleignarhús
Þessa síða er ætluð þeim sem eru fasteignaeigendur í fjöleignarhúsum þar sem rekið er húsfélag. Hugmyndin er að skapa vettvang fyrir fasteignaeigendur í fjöleignahúsum til að deila upplýsingum, koma af stað eða taka þátt í umræðum og ekki síst leita ráða hjá öðrum meiðlimum hópsins.

