Yrkill.is

– Skrifað um veruleikann – jákvætt eða neikvætt.

Menu
  • Heim
  • Bloggið
  • Myndasafn
  • Tónlistin
  • Um vefinn
  • Hafa samband
Menu

Category: Mannvirkjagerð

All um mannvirkjagerð og tengt.

Ístak lækkar launakostnað með ráðningu erlendra iðnaðarmanna

Posted on 19. september, 202613. nóvember, 2026 by Kristján

Ístak verktakafyrirtæki lækkar launakostnað.

Eitt stærsta verktakafyrirtæki landsins Ístak er um þessar mundir að skipta út íslenskum smiðum fyrir erlenda. Það er mjög skýrt dæmi um að þarna er verið að gera átak hjá fyrirtækinu í því að lækka launakostnað. Ístak sagði upp íslenskum og vönum smiðum núna síðast fyrir mánaðarmótin ágúst- september 2026 og stuttu síðar settu þeir auglýsingu á netið (Alfreð.is). Þar er auglýst eftir smiðum í gifsvinnu. Athygli vekur að auglýsingin er aðeins á pólsku og á ensku. Þetta sýnir stöðuna er hjá fyrirtækinu. Lækka þarf launakostnað með því að ráða erlenda verktaka/launamenn. Þeir hafa á sér misjafnlega gott orð þó auðvitað séu til frábærir erlendir iðnaðarmenn.

Hérna er auglýsingin á Alfreð.is: Ístak lækkar launakostnað

Þó það séu sannarlega til góðir erlendir iðnaðarmenn þá er samt staðreynd að gamla sagan sem engan endi tekur er að fyrirtækin í byggingabransanum ætla sér að spara peninga með því að ráða erlenda menn sem eru margir hvorki með reynslu eða réttindi sem iðnaðarmenn, margoft hafa svo íslenskir smiðir sem hafa þekkinguna og reunsluna þurft að koma í kjölfarið á verkum eftir þá erlendu til þess að lagfæra og/eða breyta verkum og þá er kostnaðurinn í mörgum tilfellum orðinn tvöfaldur á verkunum.
Þetta er ekkert nýtt, þannig hefur þetta verið árum saman og stéttarfélögin hafa hvorki viljann eða kjarkinn til þess að sinna sínu hlutverki nema að litlu leyti.
Á einum vinnustað Ístaks komu eftirlitsmenn frá fagfélögunum og athuguðu meðal annars hvort stór hópur erlendra “pípulagningamanna” var með réttindi en þá kom í ljós að enginn þeirra hafði réttindi sem pípari, bara örlítið dæmi um ástandið í dag 2026.

Öryggismál
Frétt um banaslys
Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa kom einnig fram að vinnuvélin hefði verið óskráð og óheimilt að aka henni í almennri umferð. Meginorsök slyssins var þó talin sú að ökumaður sendibílsins hefði verið undir áhrifum fíkniefna og óhæfur til aksturs.

Launaþjófnaður, brot á kjarasamningum og réttindalausir starfsmenn sem vinna iðnaðarstörf eru daglegt brauð á íslenskum byggingamarkaði. Ólafur Oddgeir Viðarsson, húsasmíðameistari og eftirlitsfulltrúi í vinnustaðaeftirliti Byggiðnar, hóf störf í sumar eftir 22 ár á byggingamarkaði. Honum blöskrar ástandið og segir það aldrei hafa verið jafn slæmt.
Frétt Byggiðnar um ástandið á byggingamarkaði

Share Share
Tags: Bjarki SívertssenByggiðnErlendir verktakarHermann GuðmundssonhúsasmiðirIðnaðarmennÍstakÍstak starfsmennÍstak störfMannauðsdeildMannvirkjagerðSmiðir
Category: AthyglisvertBloggiðMannvirkjagerð

GSG – Þaklagnir ehf – frágangur vinnubrögð og umgengni

Posted on 6. júlí, 202517. ágúst, 2025 by Kristján
Verktakinn GSG – Þaklagnir ehf. hefur breytt upprunalegri hönnun sem er samkvæmt byggingareglugerð á frágangi á svölunum að Helluvaði.
Verktakinn GSG – Þaklagnir ehf. hefur breytt upprunalegri hönnun sem er samkvæmt byggingareglugerð á frágangi á svölunum að Helluvaði.

Húsfélagið að Helluvaði 1-5
hefur verið einstaklega óheppið með verktaka eins og lesa má um í fyrri færslum en húsið er undirlagt af lekavandamálum sem hafa aukist með árunum og hver verktakinn á fætur öðrum hefur verið ráðinn til viðgerða með misjöfnum árangri.
Verður hér farið aðeins yfir  það í máli og myndum hvernig verktakinn GSG-Þaklagnir ehf. staðsettur að Álfhólum 2, Selfossi hefur unnið verkið á svölum efstu hæðar hússins.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá formanni húsfélagsins er ennþá leki til staðar í íbúðunum tveimur fyrir neðan svalirnar sem um ræðir 303 og 203 og mun verktakinn sem framkvæmdi síðustu viðgerðir sem ekki hafa virkað betur en þetta halda áfram að vinna við þær.

Samkvæmt upplýsingum frá Eignarekstri húsfélagaþjónustunni er eftirlitsmaður með verkinu Andri Páll Hilmarsson sem er húsasmiður og byggingatæknifræðingur.

Viðgerðin fór fram á svalagólfi sem er einnig loft/þak yfir íbúðum fyrir neðan fyrir framan íbúð 403 sem er þá sameign allra samkvæmt upplýsingum frá HMS og hefur upphaflegri hönnun á svalagólfinu verið mikið breytt og það er núna til dæmis búið að hækka hellulögnina talsvert frá upphaflegri hönnun þar sem ekki er ljós tilgangurinn með og er nú hæsti punktur kominn við neðri brún á glugga sem er til þess fallið að aukin hætta er á leka inn í íbúðina sem er innan við svalirnar en hæðarmismunur á neðri brún glugga og gólfs í íbúð er 29 cm. það er að segja gólfið er 29 sentimetrum lægra en gluggakarmur og svo er yfirborð hellulagnar við neðri brún glugga.

Sem dæmi ef mikill snjór á svölunum verður að klaka í asahláku og vatnið kemst seint eða illa niður þá verður flóð á svölunum og vatn getur flætt inn um svaladyrnar.

Í þessa rennu safnast svo með tímanum lauf og drulla og einnig snjór og klaki sem hamlar vatni að fara sína leið, þetta vatn situr þá þarna í sömu eða jafnvel hærra en gluggakarmur sem gæti svo lekið inn með tímanum.
Áður en verkið hófst komu verktaki og eftirlitsmaður á skoða aðstæður og fengu þær upplýsingar að það hafi aldrei verið neitt vandamál með vatnið áður en til þessara breytinga kom, vatnið drenaði sig alltaf í öllum veðrum enda hönnunin samkvæmt byggingareglugerð sem nú hefur verið gjörbreytt.

Verktakinn hefur einnig lokað alveg fyrir niðurfall sem tekur við vatni frá þakinu sem er líka algjörlega óskiljanlegt svo þá er bara eftir eitt niðurfall sem tekur við öllu vatninu á svölunum.
Verktakinn hefur einnig lokað alveg fyrir niðurfall sem tekur við vatni frá þakinu sem er líka algjörlega óskiljanlegt svo þá er bara eftir eitt niðurfall sem tekur við öllu vatninu á svölunum.

Verktakinn lokar niðurfalli
Verktakinn hefur einnig lokað alveg fyrir annað niðurfallið af tveimur sem voru á upprunalegri hönnun en það tekur við vatni frá þakinu sem er líka algjörlega óskiljanlegt svo þá er bara eftir eitt niðurfall sem tekur við öllu vatninu á svölunum en það er einmitt þar sem grunur er um að lekinn niður í neðri hæðirnar sé.

Ekki er ljóst hvaða breytingar voru gerðar undir hellulögninni en eftirlitsmaður sem á að gæta hagsmuna íbúðaeigenda sem er byggingatæknifræðingur og húsasmiður (Andri Páll Hilmarsson byggingatæknifræðingur) sem húsfélagið benti á var beðinn um skriflega verklýsingu með rökstuðningi en við því var ekki orðið einhverra hluta vegna.

Tryggingafélögin bæta ekki tjón
Matsmaður eignatjóna hjá tryggingafélaginu Sjóvá þar sem húsfélagið er með sameiginlega fasteignatryggingu fyrir húsið segir erfitt að átta sig á vinnubrögðum viðkomandi verktaka en hann var inntur eftir því hvort ráð væri gert fyrir því í skilmálum tryggingarinnar að tryggingafélagið bætti það tjón sem hugsanlega verður vegna þess að breytingar sem gerðar voru á svölunum frá upphaflegri hönnun leiddu til þess að tjón hlaust af í íbúð 403?
Var svarið það að fasteignatrygging húsfélagsins bætir ekki tjón vegna utanaðkomandi leka.
Það er líka staðfest að tryggingafélag séreignarinnar íbúð 403 bætir heldur ekki tjón sem rekja má til þessara breytinga á upprunalegu hönnun á frágang svala.

Þessar svokölluðu viðgerðir hafa verið samþykktar á húsfundi ef rétt er skilið.
Þá er það alveg skýrt að húsfélagið sjálft sem kemur til með að bæta tjónið eins og kemur fram í lögum um fjöleignahús:

Skaðabótaábyrgð húsfélags
52. gr.
Húsfélag er ábyrgt með sama hætti gagnvart einstökum eigendum og afnotahöfum og segir í 1. og 2. mgr. 51. gr. þegar tjón stafar af:
1. Vanrækslu á viðhaldi sameignar, búnaði hennar og lögnum.
2. Mistökum við meðferð hennar og viðhald.
3. Bilun á búnaði sameignar og sameiginlegum lögnum þótt engum sem húsfélagið ber ábyrgð á verði um það kennt.

Það er með ólíkindum að verktakinn í samráði við eftirlitsmann (Andri Páll Hilmarsson) skuli upp á sitt einsdæmi gjörbreyta upprunalegri hönnun á svalagólfinu þrátt fyrir að hafa áður komið á staðinn og skoðað og fengið þær upplýsingar að ekkert óvenjulegt hafi verið að svalagólfinu og að vatnið hafi drenast alveg eðlilega, en þarna verður ekki annað séð en að  aðeins er verið að búa til óþarfa kostnað og nýtt lekavandamál í húsinu.

Það er einnig mjög sérstakt að eftirlitsmaður með þessa fagmenntun og reynslu skuli ekki sjá og benda á vankantana á þessum frágangi en ef til vill var hann bara ráðinn fyrir formið en er svo kannski ekki raunverulegur málsvari íbúðaeigenda í húsinu.
Myndir í myndasafni

Share Share
Tags: Ágúst AðalsteinssonAndri Páll HilmarssonByggingareglugerðEignareksturGSG - Þaklagnir ehfHelluvað 1-5IðnaðarmennIðnaðarmenn ÍslandsTækniskólinn
Category: AthyglisvertMannvirkjagerðNeytendamál

Nýjar myndir af framkvæmdum á gömlu Hótel Sögu

Posted on 20. júní, 202522. júní, 2025 by Kristján
Kátir vinnufélagar á góðum degi.
Kátir vinnufélagar á góðum degi.

Hótel Saga verður Háskóli
Hérna eru myndir frá framkvæmdum vegna breytinga á húsinu þar sem gamla Hótel Saga var í áratugi en hefur nú fengið nýtt hlutverk fyrir Háskóla Íslands, menntasvið.
Aðal verktaki framkvæmda er Ístak ásamt með fjölmörgum undirverktökum.
Myndasafn

Af vef Menntavísindasviðs

Fyrirhugað er að Menntavísindasvið Háskóla Íslands flytji árið 2025 í Sögu við Hagatorg þar sem áður var Hótel Saga. Í dag fer starfsemi Menntavísindasviðs fram í Stakkahlíð, Skipholti og í Laugardal. Verkefnið er að sameina starfsemi Menntavísindasviðs undir sama þak á háskólasvæði HÍ.

Með flutningnum skapast betri skilyrði til þéttara samstarfs við önnur fræðasvið HÍ.
Áhersla í háskóla- og vísindastarfi í dag eru þverfræðilegar rannsóknir og samstarf og ýtir flutningur Menntavísindasviðs undir rannsóknarsamstarf um viðfangsefni sem fræðafólk sviðsins sinnir. Starfshópur um flutning Menntavísindasviðs er starfandi og vinnur að þarfagreiningu fyrir starfsemi sviðsins í Sögu með hliðsjón af framtíðarsýn um starfsemi sviðsins.
Þá er hópnum ætlað að vera rektor og stjórnendum skólans ráðgefandi varðandi tækifæri og áskoranir við flutning starfseminnar í Sögu.
Framkvæmdir á húsinu hófust snemma árs 2022 og er framkvæmdatími flutninga áætlaður frá janúar 2022 og fram til árs 2025 þegar fyrirhugað er að Menntavísindasvið taki húsnæðið í notkun.

Slóðin á frétt menntavísindasviðs

Share Share
Tags: Hótel SagaÍstakMenntavísindasvið Háskóla Íslands
Category: BloggiðMannvirkjagerð

Hótel Saga í endurnýjun lífdaga

Posted on 13. apríl, 202519. júní, 2025 by Kristján

Ég set hérna inn að gamni myndband tekið fyrir tæpum tveimur árum ofan á Grillinu á gömlu hótel Sögu en nú erum við komin á þriðja árið við enduruppbyggingu á húsinu.
Gamla Grillið eins og það er oftast talað um okkar á milli eða hæðin sem það var á var öll rifin en það var gamalt stálgrindarhús klætt með bárujárni og svo var búið að forskala það eins og það er kallað en það er múrhúð sem var fest utan á bárujárnið eins ótrúlegt og það nú er en þykktin á þessari múrhúð var allt að 5-6 sentimetrar að þykkt.
Nýja Grillið hefur nú verið endurbyggt og mun upprunalega úlitshönnunin að utan halda sér að mestu leyti en að innan verður allt gjörbreytt og allt fært í nútíma stíl.
Myndasafn mun birtast á næstu dögum.
En hérna er semsagt myndbandið sem sýnir ómetanlegt og fallegt útsýnið yfir Reykjavíkurborg.

https://yrkill.is/wp-content/uploads/2025/04/QVZpeU1tNERtdE00OU10aVJGcUg4Y25Z-1.mp4

Hérna er myndbandið

Share Share
Tags: Hótel SagaÍstakMannvirkjagerðMenntavísindasvið Háskóla Íslands
Category: Mannvirkjagerð

Múrtak ehf. – Fúskarar Íslands

Posted on 23. mars, 20255. ágúst, 2025 by Kristján

Fyrst skrifað 20. júní 2021 og birt á nokkrum vefsíðum.

Uppfært þann 30. júní 2022:
Þann 14. apríl 2022 barst tölvupóstur um að leki væri kominn að íbúð 303 og íbúð 203 sem eru beint fyrir neðan svalirnar.

Múrlagið sem er bara steiningarlím en ekki alvöru múrefni losnaði upp á mörgum stöðum.

Haustið 2019 var verktakafyrirtækið Múrtak ehf. ráðið af stjórn húsfélagsins að Helluvaði 1-5 í Reykjavík.  Eignarekstur ehf. útvegaði verktakann sem um ræðir til þess að gera við múrskemmdir á handriðsveggjum á svölum 4. hæðar.  Þeirri vinnu var ekki lokið með fullnægjandi hætti miðað við hefðbundnar vinnuaðferðir reyndra fagmanna á þessu sviði.
Þar komu í ljós gallar sem ekki er hægt að hrekja. Þarna var verið að stytta sér leið sem eru vinnusvik. Það er augljóslega ekki hægt að mæla með þessum múrverktaka.

Íbúðareigandi sem þarf að horfa upp á skemmdirnar sendi  beiðni um úrbætur til húsfélagsins vorið  (3.maí 2020). Ekki hefur enn verið brugðist við þessu árið 2025 og málið orðið stjórnendum húsfélagsins til skammar enda komið á stig vanrækslu.
Hér má sjá fjölmargar myndir og myndband af vinnulaginu hjá Múrtak ehf. en múrarinn sem þarna var að verki heitir Trausti Ragnar Einarsson sem er einnig skráður sem kennari í Tækniskólanum.

Tengill á Myndasafn um Múrtak og vinnubrögðin hjá þeim
Múrtak ehf í fyrirtækjaskrá RSK

Share Share
Tags: EignareksturHelluvað 1-5Hjördís Elma JóhannsdóttirIðnaðarmennMúrararMúrtakTækniskólinnTrausti Ragnar Einarsson
Category: MannvirkjagerðNeytendamál
  • 1
  • 2
  • Next
  • 19. september, 2026 by Kristján Ístak lækkar launakostnað með ráðningu erlendra iðnaðarmanna
  • 21. desember, 2025 by Kristján Undarleg framkoma framkvæmdastjórans hjá 1984 ehf. við viðskiptavini sína
  • 17. ágúst, 2025 by Kristján Útivistarsvæðið á Seltjarnarnesi
  • 6. júlí, 2025 by Kristján GSG - Þaklagnir ehf - frágangur vinnubrögð og umgengni
  • 20. júní, 2025 by Kristján Nýjar myndir af framkvæmdum á gömlu Hótel Sögu

Færslusafn

  • september 2026
  • desember 2025
  • ágúst 2025
  • júlí 2025
  • júní 2025
  • apríl 2025
  • mars 2025
  • febrúar 2025

Gerast áskrifandi

Leita á vefnum

Gerast áskrifandi

www.yrkill.is
Stjórna samþykki

Til að veita bestu mögulegu upplifun notum við tækni eins og vafrakökur til að geyma og/eða fá aðgang að upplýsingum um tæki. Með því að samþykkja þessa tækni getum við unnið úr gögnum eins og vafrahegðun eða einstökum auðkennum á þessari síðu. Að samþykkja ekki eða afturkalla samþykki getur haft neikvæð áhrif á ákveðna eiginleika og virkni.

Virkni Alltaf virkur
Tæknileg geymsla eða aðgangur er stranglega nauðsynlegur í þeim lögmæta tilgangi að gera kleift að nota tiltekna þjónustu sem áskrifandi eða notandi hefur sérstaklega óskað eftir, eða í þeim eina tilgangi að framkvæma sendingu samskipta um rafrænt fjarskiptanet.
Preferences
The technical storage or access is necessary for the legitimate purpose of storing preferences that are not requested by the subscriber or user.
Tölfræði
Tæknileg geymsla eða aðgangur sem er eingöngu notaður í tölfræðilegum tilgangi. The technical storage or access that is used exclusively for anonymous statistical purposes. Without a subpoena, voluntary compliance on the part of your Internet Service Provider, or additional records from a third party, information stored or retrieved for this purpose alone cannot usually be used to identify you.
Markaðssetning
Tæknileg geymsla eða aðgangur er nauðsynlegur til að búa til notendasnið til að senda auglýsingar eða til að rekja notandann á vefsíðu eða á nokkrum vefsíðum í svipuðum markaðssetningartilgangi.
  • Manage options
  • Manage services
  • Manage {vendor_count} vendors
  • Read more about these purposes
Skoða stillingar
  • {title}
  • {title}
  • {title}