Ístak verktakafyrirtæki lækkar launakostnað.
Eitt stærsta verktakafyrirtæki landsins Ístak er um þessar mundir að skipta út íslenskum smiðum fyrir erlenda. Það er mjög skýrt dæmi um að þarna er verið að gera átak hjá fyrirtækinu í því að lækka launakostnað. Ístak sagði upp íslenskum og vönum smiðum núna síðast fyrir mánaðarmótin ágúst- september 2026 og stuttu síðar settu þeir auglýsingu á netið (Alfreð.is). Þar er auglýst eftir smiðum í gifsvinnu. Athygli vekur að auglýsingin er aðeins á pólsku og á ensku. Þetta sýnir stöðuna er hjá fyrirtækinu. Lækka þarf launakostnað með því að ráða erlenda verktaka/launamenn. Þeir hafa á sér misjafnlega gott orð þó auðvitað séu til frábærir erlendir iðnaðarmenn.
Hérna er auglýsingin á Alfreð.is: Ístak lækkar launakostnað
Þó það séu sannarlega til góðir erlendir iðnaðarmenn þá er samt staðreynd að gamla sagan sem engan endi tekur er að fyrirtækin í byggingabransanum ætla sér að spara peninga með því að ráða erlenda menn sem eru margir hvorki með reynslu eða réttindi sem iðnaðarmenn, margoft hafa svo íslenskir smiðir sem hafa þekkinguna og reunsluna þurft að koma í kjölfarið á verkum eftir þá erlendu til þess að lagfæra og/eða breyta verkum og þá er kostnaðurinn í mörgum tilfellum orðinn tvöfaldur á verkunum.
Þetta er ekkert nýtt, þannig hefur þetta verið árum saman og stéttarfélögin hafa hvorki viljann eða kjarkinn til þess að sinna sínu hlutverki nema að litlu leyti.
Á einum vinnustað Ístaks komu eftirlitsmenn frá fagfélögunum og athuguðu meðal annars hvort stór hópur erlendra “pípulagningamanna” var með réttindi en þá kom í ljós að enginn þeirra hafði réttindi sem pípari, bara örlítið dæmi um ástandið í dag 2026.
Öryggismál
Frétt um banaslys
Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa kom einnig fram að vinnuvélin hefði verið óskráð og óheimilt að aka henni í almennri umferð. Meginorsök slyssins var þó talin sú að ökumaður sendibílsins hefði verið undir áhrifum fíkniefna og óhæfur til aksturs.
Launaþjófnaður, brot á kjarasamningum og réttindalausir starfsmenn sem vinna iðnaðarstörf eru daglegt brauð á íslenskum byggingamarkaði. Ólafur Oddgeir Viðarsson, húsasmíðameistari og eftirlitsfulltrúi í vinnustaðaeftirliti Byggiðnar, hóf störf í sumar eftir 22 ár á byggingamarkaði. Honum blöskrar ástandið og segir það aldrei hafa verið jafn slæmt.
Frétt Byggiðnar um ástandið á byggingamarkaði



